23.9.2009 | 14:15
Skviva íssnesku plís !!!
Ég nenni nú yfirleitt ekki að nöldra yfir svona hlutum en grámi dagsins fyllir mig heift.
Eru MBL blaðamennirnir farnir að nota Bullufisk til að þýða fréttirnar sínar?
Þetta er ótrúlega illa skrifuð frétt ef við miðum við að hún eigi að vera á Íslensku.
En þessi setning er einna best:
"Í Tanzaníu er hefð fyrir því að töfralæknar notist við líkamsparta albínóa til þess að búa til töfraseyði sem tryggja á þá sem það drekkja auðsæld".
Hmm verða þeir sem drekkja sér á einhvern hátt tryggðir ?
Dæmdir til dauða fyrir morð á albínóa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góður! Réttmæt athugasemd.
Marinó Óskar Gíslason, 23.9.2009 kl. 14:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.